Færsluflokkur: Íþróttir

Fyrrum söngvari ?

Síðan hvenær er Simon Le Bon fyrrum söngvari Duran Duran ? Veit ekki betur en að þessi magnaða hljómsveit er enn starfandi og hann er aðalsöngvari hennar.
mbl.is Le Bon ómyrkur í máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Staðreyndir á hreinu

Peter Lovenkrands hefur ekki skorað í síðustu fimm leikjum eins og sagt er í greininni. Hann er búinn að skora í síðustu þrem leikjum, en hefur hinsvegar skorað sex mörk í síðustu sex leikjum með Newcastle og er jafnhár Andy Carroll í markaskorun fyrir Newcaslte. Báðir hafa þeir skorað 14 mörk í deild og bikar með Newcastle í vetur......
mbl.is Newcastle nálgast úrvalsdeildina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ambrose úr Newcastle ?

Bara svo það sé á hreinu þá er Darren Ambrose ekki leikmaður Newcastle og hefur ekki spilað með Newcastle frá 2005. Hann spilar með Crystal Palace og kom þangað frá Charlton fyrir þetta tímabil. Ég vill benda greinarhöfundi að hafa svona staðreyndir á hreinu.......
mbl.is Gylfi Þór á meðal þeirra markahæstu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er þessi Stuart Taylor ?

Er kannski þriðji Taylorinn kominn í Newcastle ?
Hef bara heyrt um Steven Taylor og Ryan Taylor ;)

Spurning um að fréttamenn hafi staðreyndir á hreinu þegar er verið að skrifa um svona leiki :)

En það má lesa ítarlegri umfjöllun um leikinn á www.newcastleis.com


mbl.is Newcastle komst úr fallsætinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkuð til í þessu

Hvað voru margir Englendingar í byrjunarliðinu hjá Liverpool í fyrri leiknum gegn Real Madrid ?
Var það ekki bara einn ? Carragher ?
Þetta er auðvitað bara hálfgert grín. Menn hafa oft verið að skjóta á Arsenal hvað þeir eru með fá Englendinga en ég held að Liverpool sé ekkert skárra hvað þetta varðar.

Við myndum nú segja eitthvað ef t.d KR eða FH væri bara með einn Íslending inná í sínu byrjunarliði.


mbl.is Lippi: ,,Ensku liðin eru ekki ensk"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Lenti utan í auglýsingaskilti"

Þetta finnst mér nokkuð fyndið.Ronaldo sýnir leikræna tilburði eins og honum er einum lagið og rúllar sér í nokkra hringi eftir smá klapp frá Taylor á öxlina, hann hefði sennilega farið í enn fleiri hringi ef auglýsingaskiltið hefði ekki stoppað hann :)
Og hvað er að þessum súkkulaðipésa ? Bíða í göngunum eftir Taylor ! Var dómarinn ekki búinn að taka á málinu.
mbl.is Ronaldo beið eftir Taylor í göngunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já sæll ! Endalaust væl er þetta

Og eru ekki meiðslavandræði hjá Bolton ? Mér skilst að það séu 7 leikmenn frá vegna meiðsla eða tæpir hjá Bolton. Það fylgdi ekki fréttinni. Alltaf sama vælið þegar það vantar einhver "nöfn" í þessu stóru lið.
mbl.is Meiðslavandræði hjá ensku meisturunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rauða spjaldið öllum öðrum að kenna nema Ronaldo

Hann getur nú verið ágætis brandarakarl hann Alex Frekjuson.... Þetta er bara borðleggjandi, hann sló boltann viljandi með höndunum og það er gult spjald Wink  Þarf ekki að ræða þetta meira.
mbl.is Ferguson: Hreinlega frábærir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Newcastle - Wigan laugardag kl 15:00

Newcastle - Wigan

Steve Bruce og lærisveinar hans í Wigan mæta á St James´ Park á morgun kl 15:00. Af leikmannmálum hjá Newcastle er það að frétta að Steven Taylor hefur ekki jafnað sig á nárameiðslum og verður ekki með. Það eru ekki góðar fréttir því Cacapa náði engan vegin að fylla skarð hans í leiknum gegn Fulham um síðustu helgi. Joe Kinnear þarf að velja á milli Cacapa og Bassong í vörnina með Coloccini og vona ég innilega að Bassong verði fyrir valinu. Michael Owen er orðinn leikfær og vona ég einnig að hann verði í byrjunarliðinu á kostnað Ameobi, við þurfum bara að fá Owen í form því eins og menn vita þegar hann er í góðu formi þá skorar hann alltaf mörk. Og þó hann sé helmingi minni en Ameobi þá er hann mun betri skallamaður en hann.Mark Viduka byrjaði að æfa í dag (sjá mynd) en það eru nokkrar vikur í að hann verði klár í slaginn. Hann hefur ekki spilað síðan á síðasta degi síðustu leiktíðar. Joe Kinnear í viðtali á heimasíðu Newcastle: "Þetta er leikur sem við verðum að vinna, það er enginn vafi. Við verðum að vinna heimaleikina okkar og vonandi fáum við góðan stuðning frá stuðningsmönnum okkar. Ég hef verið mjög hrifinn af stemmingunni hér á St James´ Park og við þurfum á því að halda aftur á morgun".

Leikur liðanna á síðasta tímabili endaði með 1-0 sigri okkar manna og var það Michael Owen sem skoraði sigurmarkið á lokamínútum leiksins.

Fyrrum leikmaður Newcastle Titus Bramble spilar væntanlega með Wigan og vonandi verður hann í því formi sem við þekkjum hann best fyrir ;)

Leikmannahópur Newcastle:

Given, Harper, Beye, Enrique, Bassong, Coloccini, Cacapa, Edgar, Butt, Barton, Guthrie, Duff, Gutierrez, Geremi, Ameobi, Owen, Martins, Carroll.

Dómari leiksins verður Andre Marriner.

(Friðrik Bergmanns vefstjóri www.newcastleis.com)


Varalið Tottenham vinnur Liverpool sannfærandi :)


mbl.is Tottenham sló Liverpool út úr deildabikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband